Forsíða
Um Húsin Um Fyrirtækið Undirstöður Eldri Fréttir
Mynda Albúm
 
 
 
 


Hvar erum við?
3D Myndir
Starfsmenn
Saga
| Borgarhús.is | Saga
 
   

Borgarhús ehf
var stofnað árið 1990 að Minni-Borg í Grímsnesi og hefur á þeim tíma byggt yfir 80 sumar,- og heilsárshús. Algengasta stærð húsa er um og yfir 50 m2 . Þó hefur töluvert verið byggt af stærri húsum með tvílyftu þaki og þá manngengu svefnlofti. Þá er líka hægt að stúka það niður í herbergi ef þess er óskað. Einnig er nokkuð um það að fólk velji sér svefnloftslaus hús. Minni hús s.s. 25-30m2 hafa líka verið smíðuð í ótal útfærslun t.d. fyrir ferðaþjónustuaðila og hestafólk. Segja má að möguleikarnir séu svo til endalausir, allt eftir þörfum hvers og eins. Oft vill fólk byrja í smærri húsum og stækka svo við sig seinna. Flest húsin frá Borgarhús hafa verið staðsett í Grímsnesinu enda er þar langstærsta sumarhúsabyggð á öllu landinu eða yfir 1900 hús. Einnig eru hús frá okkur í nálægum svæðum s.s. Hrunamanna,- Þingvalla,- Biskupstungna,- og Skeiðahrepp.
Fyrirtækið hefur einnig fengist við önnur verkefni s.s. íþróttahús, kaupleiguíbúðir, ásamt ýmiskonar viðhaldi og breytingum. Því er óhætt að segja að Borgarhús hafi að baki margra ára reynslu í smíði frístundahúsa og ýmiskonar viðhaldsvinnu.

    Nýjustu Fréttir  
ÿþ
 
Borgarhús ehf. Minni-Borg Grímsnesi - Sími: 486 4411 - email: teitur@borgarhus.is